Halló halló!
Arctic Rafting er ævintýrafyrirtæki á Suðurlandi sem býður upp á flúðasiglingar í Hvítá. Árlega eftir samræmd próf og útskrift 10.bekkjarnema sigla hundruðir slíkra niður Hvítá og snæða grillveislu á eftir í veitingasalnum á Drumbó. Nýlega byrjuðum við svo að bjóða upp á fleiri möguleika til að skemmta sér úti í náttúrunni og strax síðasta vor fóru þó nokkrir skólar í lengri vorferð með okkur.
Þú getur hlaðið niður bækling frá Arctic um ferðir þessar með því að smella hér, þú getur líka skoðað allt efnið hér á vefnum.
Hér á fyrir neðan geturðu smellt á ferðirnar og skoðað úrvalið, ef þig vantar einhverja upplýsingar eða hefur áhuga á að bóka, ekki hika við að senda okkur póst á info@arcticrafting.is. Svo er auðvitað alltaf hægt að hringja í okkur í síma 898-0410 á milli 9 og 18 alla virka daga.
Það er um 3 tegundir dagsferða að ræða:
Flúðasigling á Hvítá, vinsælasta ferð síðustu tíu ára. Hægt er að snæða geggjaðan grillmat á eftir siglingu eða fara í leiki. Smelltu hér til að fá upplýsingar um flúðasiglinguna.
Hellaferð í hálftíma fjarlægð frá Reykjavík. Framandi, frumleg og frábærlega skemmtileg ný ferð í boði hjá okkur. Smelltu hér til að fá upplýsingar um hellferðina.
Ævintýra Ratleikur: Svakalega svæsinn og sprækur ratleikur með helling af leikjum og svifbrautinni æsilegu. Smelltu hér til að líta á myndir og fleira.
Svo bjóðum við upp á tveggja og þriggja daga ferðir. Ferðir þessar eru svakalega vinsælar enda verða íslenskir unglingar ævintýragjarnir með hverju árinu!
Suðurlands Safarí: Geggjuð 2 daga ferð um Suðurland. Innifalið: Ratleikur, sundferð, hamborgarar, klettasig, svifbraut, hellaferð, flúðasigling, grillveisla og aðstaða til skemmtanahalds eftir mat. Smelltu hér til að fræðast meira um hana.
Fjöll og Firnindi: Ennþá geggjaðri 2 daga ferð um Suðurland. Innifalið: Hellaferð, flúðasigling, grillveisla, jökulganga og ísklifur. Smelltu hér til að fræðast meira um ferðina.