
Fjöll og firnindi !
Dagur 1:
Byrjað er á að fara í hellaferð í grennd við Þingvelli þar sem hópnum gefst þar færi á að upplifa ótrúlegt umhverfi elds og undirheima. Eftir Hellaferðina er ekið inn í Biskupstungur þar sem allir sigla Hvítá, stökkva af klettum og ærslast í stórskemmtilegri ferð. Eftir siglinguna tekur við grillveisla í veitingasalnum á Drumboddstöðum. Gist einhversstaðar í nágrenni Hellu/Hvolsvallar.
Dagur 2:
Þegar krakkarnir rísa á fætur er ekið inn að Sólheimajökli þar sem leiðsögumenn græja alla upp í nauðsynlegan búnað áður en haldið er í jökulgöngu og ísklifur á þessum stórkostlega stað. Eftir jökulgönguna er ekið að Nesjavöllum þar sem krakkarnir skella sér í Adrenalíngarðinn með tilheyrandi áskorun og hamagang. Gist er einhversstaðar í nágrenni Hveragerðis/ Selfoss.
Lámark / Hámark: 20 / 100 manns. Lengd ferðar: ca. 2 sólarhringar, miðað við að lagt sé af stað kl. 14:00 síðasta prófdag og komið heim um hádegi á þriðja degi. Verð: 14.790 kr. Innifalið: Hellaferð, flúðasigling, grillveisla, jökulganga og ísklifur.
Ekki innifalið: Rúta, gisting og annar matur en kvöldmatur.
Smellið hér til að sjá vídeó úr hellaferðinni!
Smellið hér til að sjá vídeó úr flúðasiglingu!
Smellið hér til að sjá vídeó úr ísklifurferð!
Til baka í valmynd